Comments: Next Stop Barcelona
Upphitunarhljómsveitin var hin íslenska Ghostdigital og almáttugur, hvar á ég að byrja? Svona tónlist er spiluð í helvíti og hljómsveitarmeðlimir hafa verið snertir af djöflinum sjálfum. Fegurðarskyni mínu og tóneyra var alvarlega misboðið og ég óska verstu óvinum mínum ekki svo íllt að þurfa að sitja undir þessum hvínandi sarg óhljóðum. Ég er nú sannfærð um að Íslendingar séu kurteisasta þjóð í heimi því að í kvöld hömdu hundruð manns sig um að púa niður þessa hörmung, klöppuðu bara kurteislega eftir hvert lag með þjáningarsvip á andliti og blæðandi hljóðhimnur. Ég varð svo fegin þegar Pixies steig á svið að ég fór næstum að gráta.
Posted by Tík at June 1, 2004 10:34 AM
Hvernig væri nú að skrifa svona vitleysu undir nafni.
Posted by egill at June 1, 2004 10:41 AM
þvílík ljóðræna! takk fyrir þetta :) og hljómsveitin heitir ghostigital hér á jörðu.
Posted by einar örn at June 1, 2004 10:42 AM
Thanks for this stuff, sorry I missed it live, please do more shows in the UK! would love to support you and buy you a bag of chips.
Posted by Aria at June 2, 2004 3:19 PM
Tek undir hvert einasta orð Tíkarinnar (nema Ghostdigital) Ég hef aldrei klappað eins mikið og innilega þegar þið hættuð að spila, og trúðu mér það var ekki útaf gæðum bandsins.
Bibbi minn þínum talentum er sóað þarna, reyndu að forða þér sem allra fyrst.
Posted by El Varón at June 4, 2004 7:04 AM
já og taktu mig með þér bibbi. ekki skilja mig eftir! :)
...er ekki konsertinn löngu búinn? þjáist fólk ennþá? :) get a life... ;)
Posted by einar örn at June 4, 2004 12:20 PM